Bros sem byggja á vísindum
BioGaia góðgerlar byggja á mjólkursýrugerlinum L. reuteri. Á Íslandi fást Prodentis munnsogstöflur fyrir tannhold og tennur og Protectis dropar fyrir ungbörn.
BioGaia er sænskt fyrirtæki sem hefur rannsakað og þróað góðgerla frá árinu 1990. Hver vara byggir á tilteknum, vel rannsökuðum stofnum af L. reuteri.
- Meira en 30 ára rannsóknirUnnið í samstarfi við háskóla og sjúkrahús víða um heim.
- Mest rannsakað fyrir munnheilsuProdentis er sá góðgerill sem mest hefur verið rannsakaður fyrir munnheilsu, miðað við fjölda birtra greina á PubMed.
- Tilteknir stofnarGóðgerlar eru ekki allir eins. Áhrifin fylgja stofninum, ekki tegundinni.
BioGaia Prodentis, náttúruleg viðbót við daglega munnhirðu
Örveruflóra munnsins er sú næststærsta í líkamanum, á eftir þörmunum. Flestar bakteríurnar eru meinlausar og í heilbrigðum munni halda þær hinum í skefjum.
Mikil sykurneysla, tóbak, áfengi og slök munnhirða geta raskað jafnvæginu. Prodentis er fæðubótarefni með tveimur stofnum af L. reuteri sem bætist við tannburstun og hreinsun milli tanna. Taflan bráðnar hægt í munninum og góðgerlarnir dreifast með munnvatninu um tennur, tannhold og tungu.
- Án glútens
- Án laktósa
- Án mjólkurpróteina
- Sykurlausar
Það sem rannsóknir hafa sýnt um Prodentis
- Dregur úr tannholdsbólgu og blæðingu frá tannholdiSchlagenhauf 2016, Schlagenhauf 2020
- Viðheldur árangri tannhreinsunar hjá fólki með tannhaldsbólguTekçe 2015, Teughels 2013
- Bætir ástand tannholds í kringum tannplantaGalofré 2018
- Dregur úr andremmuKeller 2012
- Fækkar bakteríum sem tengjast tannskemmdumAlamoudi 2018, Alforaidi 2021
- Bætir sárgræðslu eftir tanndráttCinquini 2025
Niðurstöður úr klínískum samanburðarrannsóknum á L. reuteri Prodentis. Heimildir og línurit eru á síðunni fyrir fagfólk.

Prodentis munnsogstöflur
Fullorðnir og börn frá 3 ára
Myntu- eða eplabragð. Má nota á meðgöngu og við brjóstagjöf.
Rannsóknir sýna: minni tannholdsbólga og blæðing, og árangur tannhreinsunar helst betur.
NýttProdentis Fresh Breath
Fullorðnir
Ferskt myntubragð. Sömu góðgerlar og 2 mg af sinki í hverri töflu. Má nota á meðgöngu og við brjóstagjöf.
Rannsóknir sýna: sinkið lækkar strax brennisteinssambönd sem valda andremmu og góðgerlarnir hemja til lengri tíma bakteríurnar sem mynda þau.
Nýtt bragðProdentis Kids
Börn frá 3 ára
Eplabragð. Sömu góðgerlar í töflu sem börnum líkar.
Rannsóknir sýna: færri bakteríur sem tengjast tannskemmdum í munnvatni barna.
- Góðgerlar
- L. reuteri Prodentis: L. reuteri DSM 17938 og L. reuteri ATCC PTA 5289
- Magn í töflu
- Að minnsta kosti 200 milljónir lifandi gerla
- Dagskammtur
- 1–2 munnsogstöflur
- Pakkning
- 30 munnsogstöflur í plastglasi
- Innihald
- Umfangsaukandi efni (ísómalt), sætuefni (xýlitól), L. reuteri Prodentis og náttúruleg bragðefni. Fresh Breath inniheldur einnig sink.
- Geymsla
- Á þurrum stað, ekki yfir stofuhita (mest 25 °C). Geymsluþol 24 mánuðir.
Góðgerlar í munni
Í munninum búa hundruð tegunda af bakteríum í líffilmu á tönnum, tannholdi og tungu. Vandamál koma helst upp þegar jafnvægið raskast.
Munnflóran
Flestar bakteríurnar eru hluti af eðlilegri flóru munnsins. Lítill hluti þeirra tengist þó sjúkdómum í tannholdi þegar þeim fjölgar um of, og það gerist helst þegar jafnvægið raskast.
Það sem taflan gerir
Þegar taflan bráðnar vakna frostþurrkaðir gerlarnir í munnvatninu og setjast að í munnholinu, þar sem þeir keppa við aðrar bakteríur um pláss og næringu.
Af hverju daglega
Gerlarnir setjast ekki að til frambúðar. Þeir hverfa úr munninum á nokkrum vikum ef notkun er hætt og því er taflan tekin á hverjum degi.
Svona notar þú Prodentis töflurnar
Burstaðu tennurnar
Hreinsaðu líka milli tanna. Taflan nýtist best í hreinum munni.
Láttu töflu bráðna í munninum
Ekki tyggja hana eða kyngja henni heilli. Færðu hana um munninn á meðan hún leysist upp.
Endurtaktu daglega
Ein til tvær töflur á dag. Kvöldið hentar mörgum vel, eftir síðustu tannburstun dagsins.
Gott að vita
- Ef þú notar bakteríudrepandi munnskol, til dæmis klórhexidín, skaltu láta líða nokkra stund áður en þú tekur töfluna.
- Ef þú ert á sýklalyfjum er best að taka töfluna nokkrum klukkustundum frá lyfjaskammtinum.
- Ekki skal neyta meira en ráðlagðs daglegs skammts.
- Prodentis kemur ekki í stað tannburstunar, tannþráðar eða reglulegs eftirlits hjá tannlækni.
BioGaia Protectis dropar fyrir ungbörn
Fyrstu mánuðina er meltingarflóra barnsins að mótast. Protectis dropar eru fæðubótarefni með góðgerlinum L. reuteri Protectis, sem upphaflega var einangraður úr brjóstamjólk. Fimm dropar á dag, hvort sem barnið er á brjósti eða fær þurrmjólk.
Droparnir eru bragðlitlir og í þeim er aðeins sólblómaolía og gerlarnir sjálfir.
- Án glútens
- Án laktósa
- Án mjólkurpróteina
- Góðgerlar
- Limosilactobacillus reuteri DSM 17938
- Magn í skammti
- Að minnsta kosti 100 milljónir lifandi gerla í 5 dropum
- Skammtur
- 5 dropar einu sinni á dag
- Fyrir hverja
- Fullburða ungbörn frá fæðingu. Ekki ætlað fyrirburum.
- Geymsla
- Á þurrum stað við stofuhita, þar sem börn ná ekki til
Það sem rannsóknir hafa sýnt um Protectis
- Styttir daglegan gráttíma hjá brjóstabörnum með ungbarnakveisuSavino 2010, Sung 2018
Niðurstöður úr slembuðum samanburðarrannsóknum á L. reuteri DSM 17938. Gögn um börn á þurrmjólk eru of lítil til að draga ályktanir. Sjá rannsóknir.
Protectis dropar
5 ml
Góðgerlarnir einir og sér. Hentar börnum sem fá D-vítamín með öðrum hætti.
Protectis dropar með D-vítamíni
10 ml
Fimm dropar gefa líka 10 míkrógrömm af D-vítamíni, sem er ráðlagður dagskammtur ungbarna á Íslandi. Ekki gefa aðra D-vítamíndropa samhliða nema í samráði við ungbarnavernd.
Hristu flöskuna vel
Í um það bil tíu sekúndur fyrir hverja notkun, svo gerlarnir blandist olíunni.
Láttu fimm dropa drjúpa á skeið
Hallaðu flöskunni rólega. Dropana má líka setja á geirvörtuna fyrir gjöf eða út í brjóstamjólk.
Gefðu einu sinni á dag
Á sama tíma dagsins ef hægt er, þá gleymist það síður.
Gott að vita
- Ekki setja dropana út í heitan mat eða drykk. Hitinn skaðar gerlana.
- Ekki gefa beint úr flöskunni upp í munn barnsins.
- Ekki skal gefa meira en ráðlagðan dagskammt.
- Ef barnið grætur mikið, þrífst illa eða þú hefur áhyggjur skaltu tala við ungbarnavernd eða lækni.
Hvað hefur verið rannsakað
L. reuteri stofnarnir í vörunum hafa verið prófaðir í slembuðum samanburðarrannsóknum. Prodentis hefur verið metið í meira en 80 klínískum rannsóknum og yfir 20 safngreiningum. Ítarlegt yfirlit er á síðunni fyrir fagfólk.
Brjóstabörn með ungbarnakveisu fengu L. reuteri DSM 17938 eða lyfleysu í 21 dag. Foreldrar skráðu daglegan gráttíma.
Savino F, o.fl. Lactobacillus reuteri DSM 17938 in infantile colic: a randomized, double-blind, placebo-controlled trial. Pediatrics 2010;126(3):e526–e533.Safngreining á gögnum úr fjórum slembirannsóknum með 345 ungbörnum. Áhrif á gráttíma komu fram hjá brjóstabörnum, en gögn um börn á þurrmjólk voru of lítil til að draga ályktanir.
Sung V, o.fl. Lactobacillus reuteri to treat infant colic: a meta-analysis. Pediatrics 2018;141(1):e20171811.Prodentis hefur verið rannsakað í tengslum við tannholdsbólgu, tannhaldsbólgu, tannplanta, tannátu, tannréttingar, andremmu, svartar útfellingar á tönnum og sárgræðslu í munni.
Fyrir heilbrigðisstarfsfólk
Tannlæknar, tannfræðingar og lyfjafræðingar finna ítarlegra efni á sérstakri síðu um: stofnana tvo, verkunarmáta, klínískar niðurstöður með línuritum, vöruupplýsingar og heimildaskrá.
Algengar spurningar
Hvað eru góðgerlar?
Góðgerlar eru lifandi örverur sem geta haft jákvæð áhrif á heilsu þegar þeirra er neytt í nægu magni. Flestir tengja þá við meltinguna en þeir eru líka hluti af eðlilegri flóru munnsins.
Frá hvaða aldri má nota Prodentis?
Prodentis og Prodentis Kids eru fyrir börn frá 3 ára aldri og fullorðna. Prodentis Fresh Breath er fyrir fullorðna.
Má nota Prodentis á meðgöngu og við brjóstagjöf?
Já, bæði Prodentis og Prodentis Fresh Breath.
Hvenær dags er best að taka Prodentis töfluna?
Eftir tannburstun. Margir taka hana á kvöldin, því þá fá gerlarnir að vera í friði fram á morgun.
Má ég borða eða drekka strax á eftir?
Það er betra að bíða aðeins, svo gerlarnir fái tíma til að setjast að í munninum.
Hvað á ég að nota Prodentis lengi?
Prodentis er ætlað til daglegrar notkunar. Gerlarnir hverfa úr munninum á fáeinum vikum eftir að notkun er hætt.
Hentar Prodentis með flúortannkremi?
Já. Flúor hefur ekki áhrif á gerlana. Bakteríudrepandi efni í sumum tannkremum og munnskolum geta hins vegar gert það, og þá er gott að láta líða tíma á milli.
Inniheldur Prodentis sykur?
Nei. Töflurnar eru sættar með ísómalti og xýlitóli, sem skemma ekki tennur. Mikil neysla sætuefna getur haft hægðalosandi áhrif.
Frá hvaða aldri má gefa Protectis dropa?
Fullburða börnum frá fæðingu. Droparnir eru ekki ætlaðir fyrirburum.
Má gefa dropana börnum sem fá þurrmjólk?
Já. Gefðu þá á skeið eða settu þá út í volga eða kalda mjólk, ekki heita.
Hvor tegundin af dropum hentar barninu mínu?
Ef barnið fær ekki D-vítamín annars staðar henta droparnir með D-vítamíni. Ef það fær þegar D-dropa eða D-vítamínbætta þurrmjólk í nægu magni henta droparnir án D-vítamíns. Ungbarnaverndin getur leiðbeint þér.
Hverjir ættu að ráðfæra sig við lækni fyrst?
Fólk með verulega skert ónæmiskerfi eða alvarlega undirliggjandi sjúkdóma ætti að ráðfæra sig við lækni áður en það notar góðgerla.
Sölustaðir
BioGaia vörurnar fást í vefverslun á munnheilsa.is. Spyrðu líka eftir þeim í apótekinu þínu.
Apótek og tannlæknastofur
Oral Medica ehf. sér um dreifingu á Íslandi. Hafðu samband til að panta eða fá kynningarefni.
om@oralmedica.is